Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 632/1989

Gjaldár 1988

Lög nr. 46/1987 — 4. gr. 4. mgr.   Lög nr. 75/1981 — 7. gr. A-liður 1. tl. 2. mgr. — 59. gr.  

Staðgreiðsla opinberra gjalda — Gildistaka skattalaga — Gildistaka laga um staðgreiðslu opinberra gjalda — Reiknað endurgjald — Rekstrartap — Rekstrartap myndað með reiknuðu endurgjaldi

Málavextir eru þeir, að kærandi færði sér til tekna í reit 24 í skattframtali sínu árið 1988 480.000 kr. sem reiknað endurgjald vegna bifreiðaaksturs. Með bréfi, dags. 10. maí 1988, tilkynnti skattstjóri kæranda, að nefnt reiknað endurgjald 480.000 kr. hefði verið fellt niður af skattframtali 1988 og rekstrarreikningi ársins 1987 með skírskotun til 4. mgr. 4. gr. laga nr. 46/1987, um gildistöku laga um staðgreiðslu opinberra gjalda. Samkvæmt því lækkaði rekstrartap ársins úr 485.242 kr. í 5.242 kr. Við framkvæmd breytingar þessarar fór skattstjóri eftir ákvæðum 3. ml. 1. mgr. 95. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt.

Af hálfu umboðsmanns kæranda var þessari breytingu skattstjóra mótmælt í kæru, dags. 25. ágúst 1988, með svofelldum röksemdum:

„Forsendur kæru eru þær, að framteljandi telur að lagagreinar varðandi reiknað endurgjald stangist verulega á, og að markmið löggjafans með tilvitnaðri lagagrein 4. mgr. 46/1987 sé ekki að mismuna einstaklingum með rekstur miðað við lögaðila.

Með vísan til 59. gr. skattalaga þá kemur glögglega fram að mönnum með sjálfstæðan atvinnurekstur ber að reikna sér laun, og einnig að skattstjóri skal ákvarða endurgjald ef framteljandi hefur talið sér laun sem eru hæni eða lægri en ætla mætti að hann hefði fengið hjá óskyldum aðila. Til nánari stuðnings er vísað til viðmiðunarreglna ríkisskattstjóra um reiknað endurgjald.

Með vísan til laga um staðgreiðslu opinberra gjalda 45/1987 kemur einnig greinilega fram að maður er vinnur við eigin atvinnurekstur skal reikna sér laun, einnig hefur ríkisskattstjóri gefið út viðmiðunarreglur um eigin laun svo og verulegt lestrarefni um framkvæmd þeirra í staðgreiðslukerfi.

Miðað við fyrrgreindar forsendur þá verður að líta á nefnda lagagrein 4.4. 46/87 öðrum augum heldur en bréf skattstjóra gefur til kynna.

Laun kæranda eru innan eðlilegra marka, bæði miðað við fyrri ár og einnig þótt tekið sé mið af viðmiðunarreglum ríkisskattstjóra. Sé tekið mið af ofangreindu, einnig því að rekstur kæranda er í sama farvegi og rekstur fyrri ára og að úttektir eru innan eðlilegra marka, þá verður að líta svo á að tap myndist ekki vegna reiknaðs endurgjalds, heldur af öðrum ástæðum, svo sem of litlum tekjum miðað við kostnað, tilfallandi viðbótarkostnaði, vöxtum, efniskaupum eða öðru.“

Skattstjóri kvað upp kæruúrskurð í málinu þann 7. október 1988 og féllst á það með kæranda, að honum væri heimilt að reikna sér endurgjald tekjuárið 1987 án tillits til rekstrarafkomu. Væri því orðið við kröfu hans og launatengd gjöld endurreiknuð. Hins vegar væri ljóst, að 4. gr. laga nr. 46/1987 bannaði yfirfærslu þess taps, sem myndað væri með reiknuðu endurgjaldi á árinu 1987 þannig að tap til næsta árs yrði óbreytt 5.242 kr.

Af hálfu umboðsmanns kæranda hefur kæruúrskurði skattstjóra verið skotið til ríkisskattanefndar með kæru, dags. 2. nóvember 1988. Mótmælt er viðbótarálagningu „og niðurfellingu skattafsláttar er myndast með reiknuðu endurgjaldi sé ekki tekið tillit til yfirfæranlegs taps“.

Kærð er niðurfelling yfirfæranlegs taps og vísað til kæru til skattstjóra, dags. 25. ágúst 1988. Þar sem skattstjóri telji, að óheimilt sé að mynda yfirfæranlegt tap, þá stangist álagning hans á óheimil laun algerlega á við innihald 4. mgr. 4. gr. laga nr. 46/1987. Umboðsmaðurinn telur eðlilegt, að komist ríkisskattanefnd að þeirri niðurstöðu, að 4. mgr. 4. gr. laga nr. 46/1987 stangist það verulega á við aðrar lagagreinar, að hún standist ekki þá sé álagning og yfirfæranlegt tap heimilt. Sé lagagreinin hins vegar talin standast þá sé álagning á óheimil reiknuð laun ekki réttmæt.

Með bréfi, dags. 26. september 1989, gerir ríkisskattstjóri svofelldar kröfur í málinu f.h. gjaldkrefjenda:

„Með vísan til úrskurðar ríkisskattanefndar nr. 206/1989 er gerð krafa um að úrskurði skattstjóra, dags. 07.10.1988 verði hnekkt og að breyting skattstjóra á skattframtali kæranda, sem tilkynnt var kæranda með bréfi dags. 10.05.1988 verði staðfest.“

Skattstjóri felldi niður reiknað endurgjald kæranda með bréfi sínu, dags. 10. maí 1988 með því að yfirfæranlegt tap var hærra en fjárhæð endurgjaldsins. Í hinum kærða úrskurði, dags. 7. október 1988, færði skattstjóri reiknað endurgjald kæranda í upphaflegt horf, en ákvað jafnframt að endurgjaldið myndaði ekki tap. Þessi síðari breyting skattstjóra fær eigi staðist og því er henni hnekkt. Hins vegar þykir bera að staðfesta breytingu hans, dags. 10. maí 1988, með skírskotun til 4. mgr. 4. gr. laga nr. 46/1987, um gildistöku laga um staðgreiðslu opinberra gjalda með síðari breytingum, sbr. og kröfugerð ríkisskattstjóra í málinu.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja