Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 757/1976

Gjaldár 1975

Lög nr. 68/1971, 11. gr.  

Afmæliskostnaður/risna

Fyrirtæki nokkurt kærði lækkanir skattstjóra á eftirtöldum liðum:

1. Kostnaður kr. 241.399,- vegna ferðalags starfsfólks var felldur niður.
2. Kostnaður kr. 269.644,- vegna 70 ára afmælis kæranda var lækkaður um kr. 120.000,-
3. Viðskiptakostnaður (risna) kr. 433.867,- var lækkaður um kr. 300.000,-.

Ríkisskattanefnd féllst á að taka til greina kæruliði 1 og 3 en synjaði alfarið um frádrátt vegna afmæliskostnaðar.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja