Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 594/1976

Gjaldár 1974, 1975

Lög nr. 68/1971, 41. gr.  

Kærufrestur

Ríkisskattstjóri gerði kröfu um að kæru yrði vísað frá vegna þess að hún væri of seint fram komin. Hafði úrskurður skattstjóra verið kveðinn upp 12. febrúar 1976 en kæran borist ríkisskattanefnd 6. mars.

Ríkisskattanefnd féllst á kröfuna með vísan til 1. mgr. 41. gr., en skv. henni er kærufrestur til ríkisskattanefndar 21 dagur.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja