Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 292/1975

Gjaldár 1974

Lög nr. 68/1971, 15. gr. A-liður  

Fyrning viðskiptavildar (good-will)

Kærandi hafði fært til frádráttar fyrninga af good-will kr. 40.000,- en skattstjóri hafði ekki tekið þann kostnaðarlið til greina.

Í úrskurði ríkisskattanefndar segir:

"Af málflutningi kæranda eða reikningum verður eigi glöggt séð hvers eðlis eign sú er, sem hann nefnir "goodwill" á efnahagsreikningi sínum eða með hverjum hætti hún er til orðin. Þykir því að svo stöddu bera að vísa kærulið 3 frá."

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja