Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 1229/1975

Gjaldár 1974

Lög nr. 68/1971, 41. gr.  

Kærufrestur

Kærandi hafði kært til skattstjóra, en er úrskurður skattstjóra barst var kærandi erlendis. Var kærufrestur til ríkisskattanefndar liðinn er áfrýjað var. Ríkisskattanefnd þótti þó ekki ástæða til að vísa málinu frá, þar sem kærandi hafði kært án ástæðulauss dráttar eftir komu sína til landsins.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja