Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 232/1973

Gjaldár 1971

Lög nr. 68/1971, 11. gr.  

Risna

Framteljandi krafðist frádráttar vegna jólaglaðnings til starfsfólks, sem var brennivínsflaska og/eða konfektkassi til hvers starfsmanns.

Skattstjóri synjaði kæru með vísan til, að jólagjafir og aðrar tækifærisgjafir væru ekki frádráttarbærar frá tekjum sbr. ákv. 6. mgr. 23. gr. reglug. nr. 245/1963 og staðfesti ríkisskattanefnd þann úrskurð.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja