Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 104/1982

Gjaldár 1980

Reglugerð nr. 119/1965   Lög nr. 14/1965  

Launaskattur — Viðurlög — Launaskattsskil

Kærð er sú ákvörðun skattstjóra að bæta 25% viðurlögum á launaskatt vegna síðbúinna skila.

Ríkisskattstjóri krefst þess í bréfi dags. 7. janúar 1982 að úrskurður skattstjóra verði staðfestur þar sem málsatvik gefi eigi tilefni til að felld verði niður umrædd viðurlög.

Hvorki í lögum nr. 14/1965 um launaskatt né í reglugerð nr. 119/1965 um launaskatt er að finna ákvæði er heimili skattyfirvöldum að fella niður nefnd viðurlög. Með þessari athugasemd verður eigi hjá því komist að staðfesta úrskurð skattstjóra.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja