Úrskurður ríkisskattanefndar
Úrskurður rskn. nr. 153/1981
Gjaldár 1974,1975,1976 og 1977
Lög nr. 68/1971, 48. gr.
Valdþurrð skattstjóra - Skattsektir
Kærð eru álögð „gjöld“ gjaldárin 1974, 1975, 1976 og 1977.
Eins og meðferð og atvikum máls þessa er háttað þykir rétt að taka efnislega afstöðu til kröfugerðar kæranda. Skattsektir þær er skattstjóri gerði kæranda að greiða vegna gjaldáranna 1974, 1975 og 1976 eru felldar niður, þar eð skattstjóra brast vald til þeirrar ákvörðunar. Að öðru leyti skulu opinber gjöld nefnd gjaldár standa óbreytt.