Úrskurður ríkisskattanefndar
Úrskurður rskn. nr. 81/1976
Gjaldár 1974
Lög nr. 68/1971, 7. gr.
Sönnun fyrir greiðslu
Kæruefni var þannig farið, að hlutafélag nokkurt gaf upp stjórnarlaun að upphæð kr. 7.500,oo. Reiknaði skattstjóri kæranda fjárhæð þessa til tekna með viðurlögum.
Kærandi taldi sig alls ekki hafa fengið nein stjórnarlaun frá félaginu en fyrirspurn þar um svaraði félagið ekki.
Ríkisskattanefnd taldi að svo sem máli þessu væri háttað, bæri að taka kröfu kæranda til greina varðandi þessi stjórnarlaun og reiknuð viðurlög þeirra vegna.