Úrskurður ríkisskattanefndar
Úrskurður rskn. nr. 359/1976
Gjaldár 1977
Lög nr. 68/1971, 10. gr. E-liður
Eigin vinna við sumarbústað
Kærð var sú breyting skattstjóra að færa kæranda til tekna kr. 150.000,- sem var fram talin eigin vinna við sumarbústað.
Í úrskurði ríkisskattanefndar segir:
„Eigi er fallist á að skattfrelsi eigin vinnu við byggingu íbúðarhúsnæðis til eigin afnota skv. E-lið 10. gr. laga nr. 68/1971 taki til vinnu við sumarbústað. Er úrskurður skattstjóra því staðfestur.“