Úrskurður ríkisskattanefndar
Úrskurður rskn. nr. 460/1978
Gjaldár 1977
Lög nr. 68/1971, 11. gr.
Viðhald
Kærandi krafðist þess, að fá keypt efni til viðhalds dregið frá skatti, en sjálf viðgerðin á íbúðinni hafði ekki farið fram fyrir áramót. Skattstjóri taldi að efniskaup þessi væru ekki frádráttarbær að svo stöddu og staðfesti ríkisskattanefnd þann úrskurð.