Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 432/1976

Gjaldár 1975

Lög nr. 68/1971, 13. gr. D-liður  

Slysatrygging vegna heimilisstarfa

Kærð var sú breyting skattstjóra á framtali kæranda gjaldárið 1975 að fella niður af gjaldahlið rekstrarreiknings tilfært slysatryggingargjald vegna heimilisstarfa kr. 2.392.-.

Ríkisskattanefnd taldi að lagaheimild skorti til þess að heimila þennan frádrátt og hafnaði kröfum kæranda.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja