Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 436/1976

Gjaldár 1975

Lög nr. 68/1971, 25. gr. C-liður  

Barnabætur

Gerð var krafa til barnabóta fyrir tökubarn gjaldárið 1975. Skattstjóri synjaði kröfunni á þeirri forsendu, að barnið væri ekki á íbúaskrá á heimili kæranda.

Ríkisskattanefnd féllst hins vegar á kröfu kæranda, enda upplýst að foreldrar barnsins höfðu engar barnabætur fengið.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja