Úrskurður ríkisskattanefndar
Úrskurður rskn. nr. 370/1978
Gjaldár 1977
Lög nr. 67/1971, 25. gr., 36. gr.
Lífeyristryggingagjald - Slysatryggingargjald atvinnurekenda - Sambýli
Spurning reis um það, hvort kæranda bæri að greiða lífeyristryggingagjald og slysatryggingagjald atvinnurekenda vegna sambýliskonu sinnar. Ríkisskattanefnd tók kæru mannsins til greina og felldi niður hin álögðu tryggingagjöld.