Úrskurður ríkisskattanefndar

Úrskurður rskn. nr. 88/1975

Gjaldár 1974

Lög nr. 4/1973   Lög nr. 68/1971, 11. gr.  

Opinber gjöld

Meðal kæruatriða var krafa gjaldanda um að fá greitt viðlagasjóðsgjald til frádráttar skattskyldum tekjum. Segir svo um það atriði í úrskurði ríkisskattanefndar:

"Viðlagasjóðsgjaldið var skattur álagður til sérstakra þarfa skv. lögum nr. 4/1973. Með því að hvorki í þeim lögum né öðrum er að finna heimild til frádráttar á því frá skattskyldum tekjum, er eigi unnt að taka þennan kröfulið til greina."

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja