Úrskurður ríkisskattanefndar
Úrskurður rskn. nr. 262/1975
Gjaldár 1974
Lög nr. 68/1971, 11. gr.
Opinber gjöld
Kæruefnið var hvort áætluð óálögð tryggingargjöld, aðstöðugjald og launaskattur vegna atvinnurekstrar á árinu 1973 væri frádráttarbær í framtali 1974.
Ríkisskattanefnd féllst á að veita kæranda frádrátt í framtali 1974 sem svaraði því sem umrædd gjöld urðu endanlega við álagningu.