Úrskurður ríkisskattanefndar
Úrskurður rskn. nr. 1191/1973
Gjaldár 1972
Lög nr. 68/1971, 13. gr. D-liður
Hóptrygging
Kærandi fór m.a. fram á frádrátt á hóptryggingariðgjaldi. Skv. upplýsingum frá tryggingarfélaginu var innifalið í framtalinni „hóptryggingu“ kr. 5.335,00 vegna sjúkratryggingariðgjalda. Var eigi talin heimild til að veita frádrátt vegna þess, en gengið að kröfum kæranda að öðru leyti.