Úrskurður yfirskattanefndar

  • Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis
  • Regluleg umhirða íbúðarhúsnæðis

Úrskurður nr. 133/2026

Lög nr. 50/1988, 42. gr. 2. mgr.   Reglugerð nr. 449/1990, 4. gr.  

Kröfu kæranda um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu meindýraeyðis var hafnað þar sem gögn málsins þóttu benda til þess að um væri að ræða vinnu við reglulega umhirðu íbúðarhúsnæðis sem ekki yrði talin til viðhalds íbúðarhúsnæðis.

Ár 2026, miðvikudaginn 16. september, er tekið fyrir mál nr. 115/2026; kæra A, dags. 19. maí 2026, vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts. Í málinu úrskurða Sverrir Örn Björnsson, Þórarinn Egill Þórarinsson og Bjarnveig Eiríksdóttir. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með kæru, dags. 19. maí 2026, hefur kærandi skotið til yfirskattanefndar ákvörðun ríkisskattstjóra 20. febrúar sama ár um að synja kæranda um endurgreiðslu virðisaukaskatts að fjárhæð 12.600 kr. samkvæmt sölureikningi frá meindýraeyði, dags. 11. september 2026, sbr. endurgreiðslubeiðni kæranda sem byggði á því að kærandi hefði greitt virðisaukaskatt vegna vinnu við endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis að K á árinu 2025 sem ætti undir endurgreiðsluákvæði 2. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Í ákvörðun ríkisskattstjóra var vísað til 2. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988 og 1. gr. reglugerðar nr. 690/2020, um tímabundna endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna, og tekið fram að samkvæmt því væri aðeins heimilt að endurgreiða virðisaukaskatt vegna heimilisaðstoðar eða reglulegrar umhirðu íbúðarhúsnæðis á tímabilinu 1. mars 2020 til og með 30. júní 2022. Virðisaukaskattur yrði því ekki endurgreiddur af sölureikningi meindýraeyðis.

Í kæru til yfirskattanefndar kemur fram að endurgreiðslubeiðni kæranda hafi ekki byggst á tímabundinni heimild til endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna Covid-aðgerða, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 690/2020 sem runnið hafi út fyrir fjórum árum síðan. Beiðnin hafi byggst á 3. gr. og b-lið 1. gr. reglugerðar nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði. Undantekningar sem taldar séu upp í fimm liðum í 4. gr. þeirrar reglugerðar eigi ekki við í tilviki kæranda þar sem vinnan hafi falist í þéttingu sprungna og uppfyllingu til að koma í veg fyrir að meindýr gætu komið sér fyrir. Sé það sambærilegt við að gera við vatnslagnir eða steypuviðgerðir en ekki skordýraeyðingu í garði eða álíka. Sé því um að ræða endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis og sé því farið fram á að ákvörðun ríkisskattstjóra verði felld úr gildi.

II.

Með bréfi, dags. 8. júní 2026, hefur ríkisskattstjóri lagt fram umsögn um kæruna. Kemur fram að lýsing í kæru á hinu selda eigi sér ekki stoð í reikningi sem lagður hafi verið fram með endurgreiðslubeiðni, sbr. til hliðsjónar 1. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 449/1990, en á reikningnum komi fram að um sé að ræða meðhöndlun herbergis gegn veggjalús. Ekki verði því ráðið af gögnum málsins að umrædd vinna sé þess eðlis að hún falli undir b-lið 1. gr., sbr. 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 449/1990. Öllu heldur virðist sem um vinnu sé að ræða sem falli utan endurgreiðsluheimildarinnar, sbr. 5. tölul. 4. gr. reglugerðarinnar. Það sé álit ríkisskattstjóra samkvæmt framansögðu að hin kærða ákvörðun skuli verða staðfest með vísan til forsendna hennar, enda hafi ekki komið fram nein þau gögn eða málsástæður varðandi kæruefnið sem gefi tilefni til breytinga á henni.

Með bréfi, dags. 5. júní 2026, hefur kærandi komið á framfæri athugasemdum sínum vegna umsagnar ríkisskattstjóra. Lýsing á reikningi gefi ekki nákvæma mynd af þeirri vinnu sem fór fram eða fjölda vinnustunda sem hafi verið í kringum sex stundir. Ekki sé um að ræða skordýraeyðingu, sbr. 5. tölul. 4. gr. reglugerðar nr. 449/1990, þar sem vinnan hafi ekki lotið að því að drepa eða eyða skordýrum með neinum hætti. Þótt veggjalýs séu vissulega skordýr séu þær jafnframt meindýr, eins og skilgreint sé í 3. gr. reglugerðar nr. 677/2021. Ekki sé því um að ræða skordýraeyðingu frekar en t.d. að varna rottum aðgangi að hýbýlum manna.

III.

Í XIII. kafla laga nr. 50/1988 er fjallað um endurgreiðslu virðisaukaskatts. Í 2. mgr. 42. gr. laganna segir að endurgreiða skuli byggjendum íbúðarhúsnæðis 35% þess virðisaukaskatts sem þeir hafa greitt af vinnu manna á byggingarstað. Jafnframt skuli endurgreiða eigendum íbúðarhúsnæðis 35% þess virðisaukaskatts sem þeir hafa greitt af vinnu manna við endurbætur eða viðhald þess. Í lagaákvæðinu eru nokkur nánari fyrirmæli um skilyrði og framkvæmd endurgreiðslu. Einnig kemur fram að fjármálaráðherra setji með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessara endurgreiðslna. Hefur það verið gert með reglugerð nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði.

Í a- og b-lið 1. gr. reglugerðar nr. 449/1990 kemur fram að eftir því sem nánar sé ákveðið í reglugerðinni skuli endurgreiða virðisaukaskatt sem byggjendur íbúðarhúsnæðis hafi greitt af vinnu manna á byggingarstað og virðisaukaskatt sem eigendur íbúðarhúsnæðis hafa greitt vegna vinnu manna við endurbætur eða viðhald þess. Í 3. gr. reglugerðarinnar er tekið fram að endurgreiðsla samkvæmt a-lið 1. gr. taki til virðisaukaskatts vegna allrar vinnu manna sem unnin sé á byggingarstað íbúðarhúsnæðis við nýbyggingu þess, þ.m.t. vinnu við framkvæmdir við lóð hússins, jarðvegslagnir umhverfis hús, girðingar bílskúra og garðhýsa á íbúðarhúsalóð. Endurgreiðsla samkvæmt b-lið 1. gr. taki á sama hátt til virðisaukaskatts vegna allrar vinnu manna við endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis. Þá er mælt fyrir um í 4. gr. reglugerðar nr. 449/1990 að þrátt fyrir ákvæði 3. gr. taki endurgreiðslan ekki til virðisaukaskatts sem greiddur er af hvers konar vinnu við ræstingu, garðslátt, skordýraeyðingu og aðra reglulega umhirðu íbúðarhúsnæðis sem ekki verður talin viðhald eignar, sbr. 5. tölul. ákvæðisins.

Eins og fram er komið sótti kærandi um endurgreiðslu virðisaukaskatts að fjárhæð 12.600 kr. á grundvelli sölureiknings frá meindýraeyði, dags. 11. september 2025, að fjárhæð 186.000 kr. með virðisaukaskatti. Á reikningnum kemur fram eftirfarandi lýsing á hinu selda: „Herbergi meðhöndlað gegn bedbugs.“ Af hálfu kæranda er hins vegar komið fram að þrátt fyrir þessa lýsingu hafi vinna meindýraeyðisins verið fólgin í því að þétta sprungur „og uppfyllingu“ til að koma í veg fyrir að meindýr gætu komið sér fyrir í herberginu. Af hálfu kæranda hefur ekki verið gerð frekari grein fyrir verkinu þrátt fyrir tilefni samkvæmt ákvörðun ríkisskattstjóra. Þá hefur kærandi ekki lagt fram nein gögn til stuðnings sjónarmiðum sínum, t.d. frekari upplýsingar frá seljanda þjónustunnar um eðli vinnunnar. Verður að fallast á með ríkisskattstjóra að fyrirliggjandi gögn málsins benda frekast til þess að um sé að tefla vinnu af þeim toga sem greinir í ákvæði 5. tölul. 4. gr. reglugerðar nr. 449/1990 sem tekur til reglulegrar umhirðu íbúðarhúsnæðis, þar með talið eyðingar skordýra, sem ekki verður talin til viðhalds íbúðarhúsnæðis. Með vísan til framangreinds verður að hafna kröfu kæranda.

Ú r s k u r ð a r o r ð :

Kröfu kæranda í máli þessu er hafnað.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja