Úrskurður yfirskattanefndar
- Barnabætur
Úrskurður nr. 134/2026
Gjaldár 2024
Lög nr. 90/2003, 68. gr. A-liður 1. mgr.
Börnum kæranda var ráðstafað í vistun á heimili kæranda hluta ársins 2023. Kröfu kæranda um að honum yrðu ákvarðaðar barnabætur vegna þess árs var hafnað þar sem leggja yrði til grundvallar að börnin hefðu búið hjá móður sinni í árslok 2023. Tekið var fram að ekki hefði þýðingu hvernig framfærslu barnanna hefði að öðru leyti verið háttað innan ársins.
Ár 2026, miðvikudaginn 16. september, er tekið fyrir mál nr. 113/2026; kæra A, dags. 18. maí 2026, vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárið 2024. Í málinu úrskurða Sverrir Örn Björnsson, Þórarinn Egill Þórarinsson og Bjarnveig Eiríksdóttir. Upp er kveðinn svofelldur
ú r s k u r ð u r :
I.
Með kæru, dags. 18. maí 2026, hefur kærandi skotið til yfirskattanefndar ákvörðun ríkisskattstjóra, dags. 18. febrúar 2026, þar sem embættið synjaði beiðni kæranda um breytingu á áður álögðum opinberum gjöldum hans gjaldárið 2024, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með áorðnum breytingum. Nánar tiltekið laut beiðnin að því að kæranda yrðu ákvarðaðar barnabætur með börnum sínum vegna tímabilsins frá 14. júní 2023 til 14. nóvember 2023, sbr. tölvupóst kæranda 23. maí 2025 þar sem fram kom að börnin hefðu verið í umsjá hans á því tímabili og meðfylgjandi samninga vegna vistunar barns samkvæmt 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 á árinu 2023. Í hinni kærðu ákvörðun ríkisskattstjóra var vísað til þess að rétt til barnabóta ættu þeir sem bæru ótakmarkaða skattskyldu hér á landi samkvæmt 1. gr. laga nr. 90/2003 og hefðu í lok tekjuársins á sínu framfæri börn sem væru yngri en 18 ára. Framfærandi teldist sá aðili sem hefði barnið hjá sér og annaðist framfærslu þess í lok tekjuársins. Sá er greiddi meðlag með barni teldist ekki framfærandi í þessu sambandi. Við ákvörðun barnabóta árið 2024 væri miðað við fjölskyldustöðu eins og hún væri skráð í Þjóðskrá 31. desember 2023 og hefðu breytingar innan ársins ekki áhrif á þá ákvörðun. Þannig fengi sá aðili sem hefði barnið hjá sér í árslok 2023 barnabæturnar og skipti þá ekki máli hvort barnið hefði verið á framfæri hans allt árið eða hluta úr ári, sbr. A-lið 68. gr. laga nr. 90/2003. Kærandi ætti því ekki rétt á barnabótum vegna tekjuársins 2023 á þeirri forsendu að lögheimili barna hans hefði ekki verið skráð hjá honum í árslok 2023.
Í kæru til yfirskattanefndar kemur fram að kærandi hafi haft umsjá með börnum sínum á tímabilinu frá 14. júní 2023 til 14. nóvember sama ár og því annast framfærslu þeirra á því tímabili. Ríkisskattstjóri byggi hins vegar ákvörðun sína eingöngu á upplýsingum Þjóðskrár þann 31. desember 2023 og taki því ekki tillit til raunverulegra aðstæðna og þess tímabils þar sem kærandi hafi annast börnin. Í samræmi við hagsmuni barnanna og raunverulega umsjón foreldris sé því farið fram á að ákvörðun ríkisskattstjóra verði endurskoðuð, sbr. meðfylgjandi gögn. Er þar um að ræða afrit leyfis Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála til að reka bráðavistun vegna tveggja barna, dags. 27. júlí 2023, samninga vegna vistunar barnanna, dags. 14. júní og 14. október 2023, greiðslustaðfestingar frá Tryggingastofnun ríkisins og bréf stofnunarinnar, dags. 17. nóvember 2023, vegna barns í tímabundnu fóstri og afrit tölvupósta.
II.
Með bréfi, dags. 3. júní 2026, hefur ríkisskattstjóri lagt fram umsögn um kæruna. Þar kemur fram að það sé álit ríkisskattstjóra að úrskurður embættisins skuli verða staðfestur með vísan til forsendna hans, enda hafi ekki komið fram nein þau gögn eða málsástæður varðandi kæruefnið sem gefi tilefni til breytinga á ákvörðun ríkisskattstjóra.
Með bréfi til yfirskattanefndar, sem barst nefndinni 26. júní 2026, hefur kærandi komið á framfæri athugasemdum vegna umsagnar ríkisskattstjóra. Í bréfinu eru áður fram komin sjónarmið kæranda áréttuð og tekið fram að aðstæður hafi verið þannig á árinu 2023 að móðir barnanna hafi ekki verið fær um að annast þau, en hún hafi síðan yfirgefið landið í júní 2023 og skilið börnin eftir í umsjá kæranda. Hafi kærandi einn því borið ábyrgð á framfærslu og daglegri umönnun barnanna og fengið greitt meðlag með þeim, sbr. meðfylgjandi bankayfirlit.
III.
Í 1. mgr. A-liðar 68. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, segir að með hverju barni innan 18 ára aldurs á tekjuárinu, sem heimilisfast er hér á landi og er á framfæri þeirra sem skattskyldir eru samkvæmt 1. gr., skuli ríkissjóður greiða barnabætur til framfæranda barnsins. Framfærandi teljist sá aðili sem hafi barnið hjá sér og annist framfærslu þess í lok tekjuársins. Sá er greiði meðlag með barni teljist ekki framfærandi í þessu sambandi. Hjón, sem skattlögð séu samkvæmt 62. gr. laganna, teljist bæði framfærendur og skiptist barnabætur milli þeirra til helminga. Hið sama gildi um sambúðarfólk sem uppfylli í lok tekjuársins skilyrði 3. mgr. 62. gr. enda þótt það óski ekki að vera skattlagt samkvæmt þeirri grein. Að sama skapi teljast þeir sem halda heimili saman ásamt barni sínu framfærendur í skilningi ákvæðisins þótt skilyrði til skráningar á sambúð séu ekki uppfyllt. Við slíkar aðstæður skal ákvarða barnabætur eins og um hjón sé að ræða.
Samkvæmt gögnum málsins var börnum kæranda ráðstafað í vistun á heimili kæranda með ákvörðun sveitarfélagsins 14. október 2023, sbr. 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2022 og ákvæði XIII. kafla þeirra laga. Samkvæmt fyrirliggjandi samningum um vistun barnanna var tímabil vistunar frá 14. júní 2023 til 14. október sama ár og síðan frá 14. október til 14. nóvember sama ár. Hefur kærandi gert nánari grein fyrir tildrögum þessara ráðstafana og lýtur krafa hans í málinu að því að honum verði ákvarðaðar barnabætur með börnunum á umræddu tímabili þar sem hann hafi þá einn annast framfærslu þeirra og m.a. fengið greitt meðlag með þeim. Fyrir liggur að með samningi kæranda og móður barnanna, dags. 12. maí 2025, um forsjá, lögheimili og umgengni sömdu foreldrarnir um sameiginlega forsjá með börnunum þar sem fram kemur m.a. að börnin séu bæði með lögheimili hjá móður og að kærandi greiði meðlag með þeim. Í ákvörðun ríkisskattstjóra kemur fram að börnin hafi verið með skráð lögheimili hjá móður í árslok 2023.
Eins og hér að framan greinir telst framfærandi barns sá aðili sem hefur barnið hjá sér og annast framfærslu þess í lok tekjuárs, sbr. skýlaus fyrirmæli 1. mgr. A-liðar 68. gr. laga nr. 90/2003. Hefur því ekki þýðingu við úrlausn um þetta hvernig framfærslu barns hefur að öðru leyti verið háttað innan tekjuársins. Kæra kæranda til yfirskattanefndar verður ekki skilin svo að byggt sé á því að kærandi hafi annast framfærslu barna sinna utan þess sex mánaða tímabils sem tilgreint er í kærunni, þ.e. frá 14. júní til og með 14. nóvember 2023 þegar börnin voru í vistun á heimili kæranda. Verður að leggja til grundvallar að börnin hafi búið hjá móður sinni í árslok 2023, enda hefur ekkert annað komið fram. Með vísan til þessa verður að hafna kröfu kæranda í máli þessu.
Ú r s k u r ð a r o r ð :
Kröfu kæranda í máli þessu er hafnað.
