Úrskurður yfirskattanefndar

  • Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar til greiðslu húsnæðislána
  • Fyrstu kaup íbúðarhúsnæðis

Úrskurður nr. 139/2026

Lög nr. 111/2016, 5. gr. 1. mgr. (brl. nr. 63/2017, 3. gr.)  

Umsókn kæranda um nýtingu og ráðstöfun séreignarsparnaðar vegna fyrstu kaupa hans á íbúðarhúsnæði var hafnað þar sem umsóknin barst að liðnum lögboðnum tólf mánaða fresti frá undirritun kaupsamnings. Ekki var fallist á með kæranda að líta bæri svo á að umsóknin hefði borist á árinu 2023, enda hefði sú umsókn lotið að ráðstöfun séreignarsparnaðar á grundvelli laga nr. 40/2014 og ekki varðað úrræði vegna fyrstu kaupa íbúðarhúsnæðis samkvæmt lögum nr. 111/2016.

Ár 2026, miðvikudaginn 16. september, er tekið fyrir mál nr. 97/2026; kæra A, dags. 18. apríl 2026, vegna úttektar séreignarsparnaðar. Í málinu úrskurða Sverrir Örn Björnsson, Anna Dóra Helgadóttir og Bjarnveig Eiríksdóttir. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með kæru, dags. 18. apríl 2026, hefur kærandi skotið til yfirskattanefndar ákvörðun ríkisskattstjóra 25. mars 2026 varðandi nýtingu séreignarsparnaðar vegna kaupa á fyrstu íbúð, sbr. lög nr. 111/2016, um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, með áorðnum breytingum. Í kærunni kemur fram að með ákvörðun sinni hafi ríkisskattstjóri hafnað umsókn kæranda um ráðstöfun séreignarsparnaðar vegna kaupa kæranda á íbúðarhúsnæði að H á árinu 2023 þar sem umsóknin hafi borist að liðnum tólf mánaða fresti samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2016. Í ákvörðuninni sé litið svo á að umsókn kæranda hafi borist 17. febrúar 2026. Ekki sé þó rétt að líta svo á að um „frumumsókn“ kæranda sé að ræða þar sem kærandi hafi sótt um útgreiðslu séreignarsparnaðar vegna húsnæðisins hinn 23. apríl 2023, sbr. umsókn nr. ... Hafi Skatturinn fallist á umsóknina 2. maí 2023 og einnig á ráðstöfun inn á tiltekið húsnæðislán 30. september 2023. Í samskiptaþræði vegna handskráðs láns komi einnig fram að fallist sé á að ráðstafa séreignarsparnaði inn á lánið með vísan til laga nr. 111/2016. Breyting á umsókn kæranda hafi verið móttekin 23. október 2024 undir sama umsóknarnúmeri og yfirlit greiðslna beri með sér að ráðstöfunin hafi verið framkvæmd með greiðslum inn á lánið á árunum 2023 og 2024. Sé vísað til meðfylgjandi gagna um þetta. Um samfellda málsmeðferð sé þannig að ræða vegna sömu fasteignar og á sama umsóknarnúmeri. Umsókn kæranda 17. febrúar 2026 beri því að meta í samhengi við fyrri umsókn sem samþykkt hafi verið af ríkisskattstjóra. Sé því farið fram á að ákvörðun ríkisskattstjóra verði felld úr gildi og málið tekið til nýrrar meðferðar.

II.

Með bréfi, dags. 23. júní 2026, hefur ríkisskattstjóri lagt fram umsögn í málinu. Þar kemur fram að í kæru sé vísað til umsóknar kæranda um nýtingu séreignarsparnaðar samkvæmt lögum nr. 40/2014, um séreignarsparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar, sem kærandi hafi sent með rafrænum hætti á leidretting.is þann 23. apríl 2023. Sú umsókn hafi verið samþykkt og kærandi því verið með virka umsókn samkvæmt lögum nr. 40/2014 frá 26. október 2023 og ráðstöfun inn á lán hafist í september 2023. Við afgreiðslu umsóknar kæranda hafi kæranda verið bent á, í samskiptum 26. október 2023, að væri um fyrstu kaup að ræða samkvæmt lögum nr. 111/2016 og ætlunin að nýta það úrræði þyrfti að sækja um úrræðið sérstaklega á þjónustusíðu ríkisskattstjóra (skattur.is) innan tólf mánaða frá undirritun kaupsamnings. Áður en umsókn kæranda á grundvelli laga nr. 40/2014 hafi verið samþykkt hafi kærandi verið beðinn um að staðfesta að hann vildi halda umsókninni til streitu en ekki sækja um úrræði vegna fyrstu kaupa samkvæmt lögum nr. 111/2016 á þjónustusíðu. Kærandi hafi sent staðfestingu 24. apríl 2023 á því að hann vildi halda áfram með umsóknina og í framhaldinu hafi verið fallist á útgreiðslu og ráðstöfun inn á lán samkvæmt ákvæðum laga nr. 40/2014. Það sé álit ríkisskattstjóra að ákvörðunin skuli verða staðfest með vísan til forsendna hennar, enda hafi ekki komið fram nein þau gögn eða málsástæður varðandi kæruefnið sem gefi tilefni til breytinga á ákvörðun ríkisskattstjóra.

Með bréfi yfirskattanefndar, dags. 15. júlí 2026, var kæranda sent ljósrit af umsögn ríkisskattstjóra í málinu og honum gefinn kostur á að tjá sig um hana og leggja fram gögn til skýringar. Gefinn var 20 daga svarfrestur. Engar athugasemdir hafa borist.

III.

Um skattfrjálsa úttekt séreignarsparnaðar, sbr. 8. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, vegna kaupa á fyrstu íbúð gilda lög nr. 111/2016, um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Samkvæmt 2. gr. laganna er rétthafa séreignarsparnaðar heimilt að nýta viðbótariðgjald, sem greitt er á samfelldu tíu ára tímabili, eftir gildistöku laganna að tilteknu hámarki á ári, sbr. 4. gr. þeirra, með því að a) verja uppsöfnuðu iðgjaldi til kaupa á fyrstu íbúð og/eða b) ráðstafa iðgjaldi inn á höfuðstól láns sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð. Þá er rétthafa heimilt að nýta iðgjald sem afborgun inn á óverðtryggt lán, sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð, og sem greiðslu inn á höfuðstól þess eftir því sem nánar er kveðið á um í 3. gr. laganna. Samkvæmt 2. mgr. 2. gr. laga nr. 111/2016 er skilyrði fyrir úttekt á séreignarsparnaði að rétthafi hafi ekki áður átt íbúð og að hann afli sér íbúðarhúsnæðis annaðhvort einn eða í félagi við annan einstakling. Þá skal rétthafi eiga að minnsta kosti 30% eignarhlut í þeirri íbúð sem aflað er. Í 1. mgr. 5. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 63/2017, kemur fram að umsókn rétthafa um nýtingu séreignarsparnaðar til kaupa á fyrstu íbúð samkvæmt 2. gr. skuli beint rafrænt til ríkisskattstjóra á því formi sem hann ákveður. Sækja skuli um úttekt á uppsöfnuðum iðgjöldum eigi síðar en tólf mánuðum frá undirritun kaupsamnings. Sama gildi um ráðstöfun iðgjalda inn á lán.

Ekki er ágreiningur um það í málinu að kaupsamningur vegna kaupa kæranda á íbúðarhúsnæðinu að H hafi verið undirritaður 31. mars 2023, eins og fram kemur í hinni kærðu ákvörðun. Er því ljóst að umsókn kæranda um nýtingu og ráðstöfun séreignarsparnaðar vegna kaupa húsnæðisins á grundvelli laga nr. 111/2016 barst ríkisskattstjóra að liðnum lögboðnum tólf mánaða fresti samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 63/2017, en eins og fram er komið barst umsóknin þann 17. febrúar 2026. Af hálfu kæranda er komið fram að hann hafi sótt um ráðstöfun séreignarsparnaðar vegna húsnæðisins þann 23. apríl 2023 og sú umsókn verið samþykkt. Er byggt á því í kærunni að rétt sé því að miða við að umsókn kæranda samkvæmt lögum nr. 111/2016 hafi borist innan lögboðins tólf mánaða frests. Af þessu tilefni skal tekið fram að eins og rakið er í umsögn ríkisskattstjóra í málinu og fram kemur í fylgigögnum með kæru til yfirskattanefndar laut umsókn kæranda frá 23. apríl 2023 að ráðstöfun séreignarsparnaðar á grundvelli laga nr. 40/2014, um séreignarsparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar, en varðaði ekki úrræði vegna fyrstu kaupa íbúðarhúsnæðis samkvæmt lögum nr. 111/2016. Til þess er að líta að á vef ríkisskattstjóra er að finna ítarlegar upplýsingar um rétt fyrstu íbúðarkaupenda til að nýta og ráðstafa séreignarsparnaði sínum, sbr. lög nr. 111/2016, og um umsóknarferli, þar með talið lögbundinn umsóknarfrest. Þykja ekki neinar forsendur til þess í ljósi þessa að líta svo á að umsókn kæranda samkvæmt lögum nr. 111/2016 hafi borist ríkisskattstjóra fyrr en hinn 17. febrúar 2026. Með vísan til þess og þar sem ekkert hefur komið fram af hálfu kæranda um að afsakanlegar ástæður hafi legið að baki síðbúinni umsókn hans þannig að ríkisskattstjóra hafi verið rétt að taka umsóknina til efnislegrar meðferðar, sbr. til hliðsjónar ákvæði um afleiðingar þess er kæra til æðra stjórnvalds berst að liðnum kærufresti í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, verður að hafna kröfu kæranda um endurskoðun hinnar kærðu ákvörðunar ríkisskattstjóra.

Ú r s k u r ð a r o r ð :

Kröfu kæranda í máli þessu er hafnað.

Þessi síða notar vefkökur

Nánari upplýsingar

Samþykkja