Úrskurður yfirskattanefndar
- Kílómetragjald
- Undanþága frá greiðslu
Úrskurður nr. 143/2026
Lög nr. 100/2025, 5. gr. 1. mgr. 1. tölul., bráðabirgðaákvæði IV.
Fallist var á kröfu kæranda um að húsbifreið í eigu hennar, sem staðsett var erlendis við gildistöku laga nr. 100/2025, um kílómetragjald á ökutæki, þann 1. janúar 2026 og hafði ekki verið flutt til landsins að nýju væri undanþegin greiðslu kílómetragjalds samkvæmt bráðabirgðaákvæði IV laganna.
Ár 2026, miðvikudaginn 16. september, er tekið fyrir mál nr. 56/2026; kæra A, dags. 8. mars 2026, vegna álagningar kílómetragjalds árið 2026. Í málinu úrskurða Sverrir Örn Björnsson, Þórarinn Egill Þórarinsson og Bjarnveig Eiríksdóttir. Upp er kveðinn svofelldur
ú r s k u r ð u r :
I.
Með kæru, dags. 8. mars 2026, hefur kærandi skotið til yfirskattanefndar úrskurði ríkisskattstjóra, dags. 3. mars 2026, vegna kílómetragjalds af ökutækinu U á árinu 2026. Með úrskurði þessum hafnaði ríkisskattstjóri beiðni kæranda um niðurfellingu kílómetragjalds, sbr. lög nr. 100/2025, um kílómetragjald á ökutæki. Vísaði ríkisskattstjóri til þess að ökutækið, sem væri á íslenskum númerum, skráð hér á landi og skráð í umferð samkvæmt ökutækjaskrá hefði verið staðsett erlendis frá árinu 2023. Upplýsingar úr ökutækjaskrá bæru með sér að ökutækið væri skráð sem húsbifreið sem hefði verið í umferð frá 25. apríl 2022. Samkvæmt skráningu skoðunarstöðvar á stöðu akstursmælis 29. apríl 2025 hefði bifreiðinni verið ekið 179.571 km og kærandi skráð stöðu akstursmælis 185.210 km á island.is 11. janúar 2026. Ökutækinu hefði því verið ákvörðuð bráðabirgðagreiðsla kílómetragjalds vegna janúar 2026 að fjárhæð 4.726 kr.
Ríkisskattstjóri vísaði til ákvæðis 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 100/2025 sem tæki til bifreiða sem hefðu verið fluttar tímabundið úr landi og tók fram að ökutækið U væri gjaldskylt samkvæmt a-lið 2. tölul. 1. mgr. 3. gr. sömu laga. Ökutækið væri enn staðsett erlendis samkvæmt upplýsingum frá kæranda og félli því ekki undir undanþágu 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. vegna tímabundins útflutnings. Hefði ökutækið verið staðsett erlendis við gildistöku laga nr. 100/2025 hefði aðeins þurft að skrá mælisstöðu við flutning ökutækisins aftur til landsins, sækja um undanþágu vegna tímabundins flutnings úr landi og leggja fram staðfestingu á út- og innflutningi. Þar sem ökutækið væri gjaldskylt bæri kæranda að greiða mánaðarlega bráðabirgðagreiðslu kílómetragjalds samkvæmt 9. gr. laga nr. 100/2025. Með vísan til framangreinds og fyrirliggjandi upplýsinga og gagna væru ekki uppfyllt skilyrði til undanþágu frá kílómetragjaldi vegna tímabundins útflutnings, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. laganna, og bæri kæranda því að greiða bráðabirgðagreiðslu gjaldsins fram að álagningu samkvæmt 10. gr. laganna. Beiðni kæranda um undanþágu frá gjaldinu væri því synjað.
Í kæru til yfirskattanefndar er þess krafist að úrskurður ríkisskattstjóra verði felldur úr gildi og að kílómetragjald af ökutækinu U verði fellt niður þar sem ökutækið sé staðsett erlendis og nýti því ekki íslenska vegi eða aðra innviði sem kílómetragjaldi sé ætlað að standa undir. Um sé að ræða húsbíl sem fluttur hafi verið úr landi árið 2023 og sé notaður af kæranda og fjölskyldu hennar í útlöndum. Ekki sé gert ráð fyrir því að ökutækið verði flutt aftur til Íslands heldur notað í útlöndum og þegar keypt verði nýtt ökutæki, sem skráð verði erlendis, verði ökutækið U selt. Liggi því fyrir að enginn akstur ökutækisins hafi farið fram hérlendis frá gildistöku laga um kílómetragjald. Gjaldtakan sé því hvorki byggð á þeim gjaldstofni sem lög nr. 100/2025 geri ráð fyrir né standi hún í neinum tengslum við þá þjónustu sem gjaldinu sé ætlað að standa undir, þ.e. viðhaldi og uppbyggingu íslenska vegakerfisins. Ekki sé raunhæft að flytja ökutækið aftur til Íslands til þess eins að fá álagt kílómetragjald endurgreitt og sé óhófleg fyrirframinnheimta gjaldsins ekki í samræmi við meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar. Málið snúist ekki um tímabundna dvöl ökutækisins og leiði túlkun ríkisskattstjóra til þess að gjald sé lagt á ökutæki sem hvorki sé notað á Íslandi né sem raunhæfur möguleiki sé á að njóta undanþágu vegna. Í úrskurði ríkisskattstjóra sé þessum sjónarmiðum kæranda ekki svarað efnislega og sé rökstuðningur embættisins því ekki fullnægjandi. Telji kærandi því álagningu gjaldsins í þessu tilviki hvorki í samræmi við markmið laga nr. 100/2025 né almennar meginreglur stjórnsýsluréttar.
II.
Með bréfi, dags. 3. júní 2026, hefur ríkisskattstjóri lagt fram umsögn í málinu. Í umsögninni er vísað til ákvæða 1. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 5. gr. laga nr. 100/2025 sem taki einungis til tímabundins flutnings ökutækja úr landi. Ökutækið U sé gjaldskylt samkvæmt a-lið 2. tölul. 1. mgr. 3. gr. sömu laga og sé samkvæmt upplýsingum kæranda staðsett erlendis. Því falli ökutækið ekki undir undanþágu 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. þar sem ekki hafi verið sýnt fram á að um tímabundinn útflutning sé að ræða. Beri kæranda því að greiða bráðabirgðagreiðslu gjaldsins mánaðarlega samkvæmt 9. gr. laganna miðað við áætlun á meðalakstri. Þar sé álit ríkisskattstjóra að hinn kærði úrskurður skuli verða staðfestur með vísan til forsendna hans, enda hafi ekki komið fram nein þau gögn eða málsástæður varðandi kæruefnið sem gefi tilefni til breytinga á ákvörðun ríkisskattstjóra.
Með bréfi til yfirskattanefndar hinn 11. júní 2026 hefur kærandi komið á framfæri athugasemdum sínum vegna umsagnar ríkisskattstjóra. Er áréttað að kærandi byggi ekki á því í málinu að undanþága vegna tímabundins útflutnings eigi við í hennar tilviki, enda hafi ökutækið U verið staðsett erlendis frá árinu 2023 og verði ekki flutt til Íslands að nýju. Í umsögn ríkisskattstjóra sé því ekki tekin efnisleg afstaða til meginatriða kærunnar sem sé að gjald sé lagt á ökutæki sem sé staðsett erlendis og noti ekki íslenska vegakerfið, þ.e. ekki sé um neinn akstur þess að ræða hér á landi frá gildistöku laga um kílómetragjald. Auðvelt sé að sannreyna áframhaldandi dvöl ökutækisins erlendis með skoðunarvottorði þess ríkis þar sem ökutækið sé staðsett, en í tilviki kæranda fari ökutækið í reglulegar skoðanir erlendis og slík gögn staðfesti að ökutækið sé enn utan Íslands. Að öðru leyti séu sjónarmið kæranda ítrekuð.
III.
Samkvæmt 1. gr. laga nr. 100/2025, um kílómetragjald á ökutæki, skal greiða í ríkissjóð kílómetragjald af akstri ökutækja eins og nánar er ákveðið í lögunum. Um gjaldskylda aðila er fjallað í 2. gr. laganna og um gjaldskyld ökutæki í 3. gr. þeirra. Í 4. gr. laganna eru talin ökutæki sem eru undanþegin gjaldskyldu og í 5. gr. eru ákvæði um undanþágur frá greiðslu kílómetragjalds. Samkvæmt 1. tölul. 1. mgr. síðastnefndrar lagagreinar ber ekki að greiða kílómetragjald af ökutækjum sem hafa verið flutt tímabundið úr landi. Er tekið fram að skilyrði fyrir undanþágunni sé að gjaldskyldur eigandi eða umráðamaður skrái stöðu akstursmælis ökutækis, sbr. 7. gr. laganna, við brottför frá landinu og við komu til landsins ásamt því að tilgreina að um tímabundinn flutning úr landi sé að ræða. Einnig beri að framvísa staðfestingu til sönnunar á tímabundnum útflutningi á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Þá ber ekki að greiða kílómetragjald þegar ökutæki hefur verið skráð úr umferð í ökutækjaskrá, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 100/2025. Skilyrði fyrir þeirri undanþágu er að gjaldskyldur eigandi eða umráðamaður skrái stöðu akstursmælis ökutækis, sbr. 7. gr., samhliða beiðni um skráningu ökutækis úr umferð.
Lög nr. 100/2025 öðluðust gildi 1. janúar 2026, sbr. gildistökuákvæði 28. gr. laganna. Í ákvæði til bráðabirgða IV í lögunum kemur fram að sé ökutæki erlendis, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 5. gr., eða ökutæki skráð úr umferð við gildistöku laganna skuli ekki skrá stöðu akstursmælis við afskráningu þess ef aðstæður hafa ekki breyst frá gildistöku laganna. Í athugasemdum við bráðabirgðaákvæðið í frumvarpi því, sem varð að lögum nr. 100/2025, kemur fram að í ákvæðinu sé lagt til að ef ökutæki sé erlendis eða sé skráð úr umferð við gildistöku laganna, svo sem ef skráningarmerki sé í varðveislu skráningaraðila, skuli ekki skrá stöðu akstursmælis við afskráningu þess ef aðstæður hafi ekki breyst frá gildistöku laganna. Í ljósi þess að ekki reyni á gjaldskyldu samkvæmt lögunum við þessar aðstæður sé ekki talin þörf á skráningu á stöðu akstursmælis ef þær aðstæður séu uppi sem kveðið sé á um í ákvæðinu (Þskj. 147 á 157. löggjafarþingi 2025-2026). Hliðstætt bráðabirgðaákvæði var að finna í lögum nr. 101/2023, um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, sbr. bráðabirgðaákvæði IV í þeim lögum, og í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis kemur fram að ákvæðið sé tekið upp í ljósi þess að ekki reyni á gjaldskyldu samkvæmt lögunum við þessar aðstæður og sé skráning á stöðu akstursmælis því með öllu óþörf (Þskj. 799 á 154. löggjafarþingi 2023-2024).
Samkvæmt framansögðu er gengið út frá því í lögum nr. 100/2025, sbr. bráðabirgðaákvæði IV, að skylda til greiðslu kílómetragjalds eftir lögunum sé ekki fyrir hendi vegna ökutækja sem séu erlendis við gildistöku laganna 1. janúar 2026, enda hafi aðstæður ekki breyst að því leyti þegar kemur til afskráningar hlutaðeigandi ökutækis, sbr. 16. gr. laganna þar sem fjallað er um afskráningu. Gildir hið sama um ökutæki sem skráð hafa verið úr umferð í ökutækjaskrá við gildistöku laganna og eru síðar afskráð án þess að komið hafi til þess að þau hafi aftur verið skráð í umferð. Samrýmist þetta fyllilega almennum reglum laganna að öðru leyti sem ekki gera ráð fyrir því að greitt sé kílómetragjald af akstri gjaldskyldra ökutækja erlendis að uppfylltum skilyrðum þar að lútandi, sbr. ákvæði 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. þeirra sem hér að framan eru rakin. Verður því ekki fallist á með ríkisskattstjóra að undanþága slíkra ökutækja frá greiðslu kílómetragjalds sé háð því að um tímabundinn útflutning þeirra sé að ræða í skilningi 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 100/2025 og að uppfylltum þeim skilyrðum sem þar koma fram. Þess er að geta að hvorki í hinum kærða úrskurði ríkisskattstjóra í málinu né í umsögn embættisins til yfirskattanefndar er neitt vikið að bráðabirgðaákvæði IV eða þýðingu þess fyrir úrlausn málsins.
Ekki verður annað séð en að það sé óumdeilt í málinu að ökutækið U, sem er húsbifreið, hafi verið staðsett erlendis við gildistöku laga nr. 100/2025 hinn 1. janúar 2026 og hafi ekki verið flutt til landsins að nýju, eins og fram kemur í kæru kæranda, en eftir því sem gögn málsins bera með sér var ökutækið fært til skoðunar erlendis dagana 1. júlí 2024, 29. apríl 2025 og 20. mars 2026. Verður því að telja að bráðabirgðaákvæði IV laganna eigi við í tilviki ökutækisins með því að aðstæður séu óbreyttar að þessu leyti og að ekki beri því að greiða kílómetragjald af akstri ökutækisins á árinu 2026. Krafa kæranda í málinu er því tekin til greina.
Samkvæmt 18. gr. laga nr. 30/1992, um yfirskattanefnd, ber undir stjórnvald að framkvæma gjaldabreytingar sem stafa af úrskurði yfirskattanefndar. Ríkisskattstjóra er því falið að annast um þær breytingar sem leiða af úrskurði þessum.
Ú r s k u r ð a r o r ð :
Krafa kæranda í máli þessu er tekin til greina.
