Úrskurður yfirskattanefndar
- Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis
Úrskurður nr. 144/2026
Lög nr. 50/1988, 42. gr. 2. mgr. Reglugerð nr. 449/1990, 4. gr.
Krafa kæranda í máli þessu um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við smíði handriðs á lóð íbúðarhúsnæðis var tekin til greina með úrskurði yfirskattanefndar, enda þóttu engin efni til þess að álykta af gögnum málsins að vinna við smíði og uppsetningu handriðsins hefði farið fram á „verkstæði“ í skilningi viðeigandi reglugerðar, en á því var hin kærða synjun ríkisskattstjóra byggð.
Ár 2026, miðvikudaginn 16. september, er tekið fyrir mál nr. 98/2026; kæra A, húsfélags, dags. 20. apríl 2026, vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts. Í málinu úrskurða Sverrir Örn Björnsson, Þórarinn Egill Þórarinsson og Bjarnveig Eiríksdóttir. Upp er kveðinn svofelldur
ú r s k u r ð u r :
I.
Með kæru, dags. 20. apríl 2026, hefur kærandi skotið til yfirskattanefndar ákvörðun ríkisskattstjóra 15. sama mánaðar um að synja kæranda um endurgreiðslu virðisaukaskatts að fjárhæð 17.405 kr. samkvæmt sölureikningi frá T ehf., dags. 23. mars 2026, sbr. endurgreiðslubeiðni kæranda sem byggði á því að húsfélagið hefði greitt virðisaukaskatt vegna vinnu við endurbætur eða viðhald íbúðarhúsnæðis að M á árinu 2026 sem ætti undir endurgreiðsluákvæði 2. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Í ákvörðun ríkisskattstjóra var vísað til 2. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988 og 14. gr. reglugerðar nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði, og tekið fram að samkvæmt 3. mgr. 4. gr. nefndrar reglugerðar tæki endurgreiðsla virðisaukaskatts einungis til vinnu manna á verkstað en ekki til vinnu á verkstæði. Samkvæmt meðfylgjandi sölureikningi væri einungis um verkstæðisvinnu að ræða.
Í kæru til yfirskattanefndar kemur fram að endurgreiðslubeiðni kæranda sé til komin vegna vinnu við smíði handriðs utandyra að M. Meðfylgjandi ljósmynd af handriðinu beri með sér að handrið við þær aðstæður sé aldrei unnt að smíða á verkstæði. Handriðið sé boltað niður í grjót sem hafi óræða lögun þannig að ekki sé hægt að taka nein mál sem unnt sé að fara með á verkstæði og koma með fullsmíðað handrið til baka heldur verði að „skálda þetta upp á staðnum“, eins og segir í kæru.
II.
Með bréfi, dags. 1. júlí 2026, hefur ríkisskattstjóri lagt fram umsögn um kæruna þar sem fram kemur að það sé álit ríkisskattstjóra að hinn kærði úrskurður skuli verða staðfestur með vísan til forsendna hans, enda hafi ekki komið fram nein þau gögn eða málsástæður varðandi kæruefnið sem gefi tilefni til breytinga á ákvörðun ríkisskattstjóra.
Með tölvupósti 18. júlí 2026 hefur kærandi komið á framfæri athugasemdum sínum vegna umsagnar ríkisskattstjóra. Í bréfinu kemur fram að um sé að ræða handrið sem smíðað sé úr ryðfríu stáli sem smíðað sé við tröppur utandyra og boltað í stóra, náttúrulega steina með óreglulegri lögun. Þar af leiðandi sé ómögulegt að smíða handriðið á verkstæði þar sem ekki sé hægt að taka nein mál til að smíða eftir heldur verði að hanna handriðið og smíða á staðnum.
III.
Í XIII. kafla laga nr. 50/1988 er fjallað um endurgreiðslu virðisaukaskatts. Í 2. mgr. 42. gr. laganna segir að endurgreiða skuli byggjendum íbúðarhúsnæðis 35% þess virðisaukaskatts sem þeir hafa greitt af vinnu manna á byggingarstað. Jafnframt skuli endurgreiða eigendum íbúðarhúsnæðis 35% þess virðisaukaskatts sem þeir hafa greitt af vinnu manna við endurbætur eða viðhald þess. Í lagaákvæðinu eru nokkur nánari fyrirmæli um skilyrði og framkvæmd endurgreiðslu. Einnig kemur fram að fjármálaráðherra setji með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessara endurgreiðslna. Hefur það verið gert með reglugerð nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði.
Í a- og b-lið 1. gr. reglugerðar nr. 449/1990 kemur fram að eftir því sem nánar sé ákveðið í reglugerðinni skuli endurgreiða virðisaukaskatt sem byggjendur íbúðarhúsnæðis hafi greitt af vinnu manna á byggingarstað og virðisaukaskatt sem eigendur íbúðarhúsnæðis hafa greitt vegna vinnu manna við endurbætur eða viðhald þess. Í 3. gr. reglugerðarinnar er tekið fram að endurgreiðsla samkvæmt a-lið 1. gr. taki til virðisaukaskatts vegna allrar vinnu manna sem unnin sé á byggingarstað íbúðarhúsnæðis við nýbyggingu þess, þ.m.t. vinnu við framkvæmdir við lóð hússins, jarðvegslagnir umhverfis hús, girðingar bílskúra og garðhýsa á íbúðarhúsalóð. Endurgreiðsla samkvæmt b-lið 1. gr. taki á sama hátt til virðisaukaskatts vegna allrar vinnu manna við endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis. Í 4. gr. reglugerðar nr. 449/1990 er tiltekin vinna og þjónusta sem ekki fellur undir endurgreiðsluákvæðin. Meðal annars kemur fram í 3. tölul. 4. gr. að endurgreiðsla taki ekki til virðisaukaskatts sem greiddur sé af vinnu sem unnin sé á verkstæði. Þá skuli ekki endurgreiða virðisaukaskatt af vinnu sem unnin sé með vélum sem settar séu upp á byggingarstað til aðvinnslu á vöru eða efni til íbúðarbyggingar, endurbóta eða viðhalds ef þessi vinna sé að jafnaði unnin á verkstæði eða í verksmiðju.
Eins og fram er komið sótti kærandi um endurgreiðslu virðisaukaskatts að fjárhæð 17.405 kr. á grundvelli sölureiknings frá T ehf., dags. 23. mars 2026, að fjárhæð 304.048 kr. með virðisaukaskatti. Í endurgreiðslubeiðni kæranda kom fram að smíðað hefði verið handrið við tröppur að bílastæði á lóð íbúðarhúsnæðisins við M. Á reikningnum kemur fram sú lýsing á hinu selda að um sé að ræða efni og vinnu við handrið M og sundurliðun reikningsfjárhæðar í tímavinnu 207.200 kr. og efni 38.000 kr., í báðum tilvikum án virðisaukaskatts. Að þessu athuguðu verður ekki séð að sú staðhæfing ríkisskattstjóra í hinni kærðu ákvörðun, að samkvæmt reikningum hafi einungis verið um verkstæðisvinnu að ræða, fái staðist, enda kemur ekkert fram þess efnis á reikningnum. Í kæru til yfirskattanefndar er þessu jafnframt mótmælt og byggt á því að vinnan hafi farið fram á staðnum af ástæðum sem þar greinir. Í umsögn ríkisskattstjóra í málinu er ekkert að þessu vikið. Eru samkvæmt framansögðu engin efni til þess að álykta að vinna við smíði og uppsetningu handriðsins hafi farið fram á „verkstæði“ í skilningi 3. tölul. 4. gr. reglugerðar nr. 449/1990, enda kemur ekkert fram um það í gögnum málsins. Með vísan til framanritaðs og fram kominna skýringa kæranda að öðru leyti þykir mega taka kröfu kæranda í málinu til greina.
Samkvæmt 18. gr. laga nr. 30/1992, um yfirskattanefnd, með síðari breytingum, ber undir stjórnvald að framkvæma gjaldabreytingar sem stafa af úrskurði yfirskattanefndar. Er ríkisskattstjóra því falið að annast um endurgreiðslu samkvæmt úrskurði þessum.
Ú r s k u r ð a r o r ð :
Fallist er á umkrafða endurgreiðslu virðisaukaskatts að fjárhæð 17.405 kr.
