Úrskurður yfirskattanefndar
- Dánarbú
- Frestun söluhagnaðar
Úrskurður nr. 355/1996
Gjaldár 1994
Lög nr. 75/1981, 2. gr. 1. mgr. 5. tölul., 27. gr.
Í úrskurði yfirskattanefndar í máli þessu vegna skattlagningar dánarbús kom fram að við andlát manns tæki dánarbú hans við skattalegum réttindum hans og skyldum, þar á meðal heimild til dreifingar tekjufærslu söluhagnaðar samkvæmt 27. gr. laga nr. 75/1981. Fallist var á kröfu kæranda.
I.
Málavextir eru þeir að A lést 22. nóvember 1993. Af hálfu dánarbús hans var ekki talið fram til skatts innan tilskilins frests árið 1994 og sætti það því áætlun skattstofna við álagningu opinberra gjalda það ár. Skattframtal kæranda barst skattstjóra 25. júlí 1994 og var tekið sem kæra á álagningunni. Á því var m.a. færður frestaður söluhagnaður í reit 77 að fjárhæð 1.166.628 kr. Þá voru í reit 14 færðir vextir að fjárhæð samtals 617.468 kr. Með kæruúrskurði, dags. 17. október 1994, féllst skattstjóri á að leggja innsent skattframtal til grundvallar álagningu opinberra gjalda í stað áætlunar áður. Tók skattstjóri fram að álagning á tekjur fram að andláti færi samkvæmt 2. mgr. 70. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, en eftir andlát tæki við skattskylda dánarbúsins og færi álagning á það eftir álagningarreglum sem giltu um lögaðila. Skattstjóri færði til tekna allan frestaðan söluhagnað, samtals að fjárhæð 4.666.512 kr., þar sem skattskyldu einstaklings væri lokið. Frestun söluhagnaðar væri hvorki heimilt að flytja yfir á dánarbú né erfingja. Þá væru vaxtatekjur af verðbréfum skattskyldar tekjur dánarbúsins. Ákvarðaði skattstjóri hlutfall vaxtatekna dánarbúsins 65.976 kr., þ.e. 39/365 hlutar allra vaxtatekna í reit 14 á framtalinu.
Með kæru, dags. 8. nóvember 1994, hefur kæruúrskurði skattstjóra verið skotið til yfirskattanefndar og þess krafist að gerðar breytingar verði felldar niður. Tekið er fram að tilfærðar vaxtatekjur hafi allar fallið til fyrir andlátið. Í bréfi umboðsmanns kæranda, dags. 15. ágúst 1995, er vísað til úrskurðar yfirskattanefndar nr. 1376/1994 og bent á að þar komi fram að dánarbú skuli taka við skattalegum skyldum hins látna varðandi söluhagnað sem frestað sé skattlagningu á.
Með bréfi, dags. 16. febrúar 1996, hefur ríkisskattstjóri fyrir hönd gjaldkrefjenda lagt fram svofellda kröfugerð:
„Samkvæmt úrskurði yfirskattanefndar nr. 1376/1994 flyst óskattlagður hluti þess söluhagnaðar er til varð í lifanda lífi manns yfir til dánarbús hans og skal koma til skattlagningar hjá því. Það er mat ríkisskattstjóra að af niðurstöðu þessari megi leiða, að dreifing óskattlagðs söluhagnaðar haldist fram að skiptalokum, þannig að ef skiptum er ekki lokið í árslok á dánarári flytjist sá hluti söluhagnaðar sem þá er enn óskattlagður yfir á næsta ár og komi þá til skattlagningar hjá viðkomandi dánarbúi.
Við andlát A hinn 22. nóvember 1993 stofnaðist skattskylda dánarbús hans og þeirri skattskyldu lýkur þann dag er skiptum á dánarbúinu er lokið. Að mati ríkisskattstjóra ber því að skipta þeim hluta dreifðs söluhagnaðar sem tilheyrir tekjuárinu 1993 hlutfallslega miðað við andlátsdag. Árleg tekjufærsla umrædds söluhagnaðar nam kr. 1.166.628. Því koma 325/365 til skattlagningar fram að andláti, eða kr. 1.038.778. Eftirstöðvar þess árs, kr. 127.850 koma til skattlagningar hjá dánarbúi hins látna.
Með vísan til framanritaðs og þar sem skiptum á dánarbúinu var ekki lokið í árslok 1993 telur ríkisskattstjóri að fallast beri á kröfu kæranda, þannig að eftirstöðvar umrædds söluhagnaðar, kr. 3.499.884 komi til skattlagningar hjá dánarbúinu á næsta ári, þ.e. tekjuárinu 1994.“
II.
Kærandi er dánarbú og ber sjálfstæða skattskyldu skv. 5. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt. Við andlát A hinn 22. nóvember 1993 stofnaðist skattskylda dánarbúsins og er skattskyldu þeirri ólokið. Ágreiningsmálið í máli þessu varðar skattlagningu á eftirstöðvum þess hluta söluhagnaðar sem dreift var til skattlagningar á sex árum skv. 27. gr. laga nr. 75/1981, sbr. skattframtal árið 1991 og kæruúrskurð skattstjóra, dags. 20. desember 1991. Fjárhæð þess hluta söluhagnaðar sem dreift var til skattlagningar samkvæmt fyrrnefndu lagaákvæði nam 6.999.769 kr. og skyldu 1.166.628 kr. koma til skattlagningar á hverju ári á umræddu tímabili. Fyrsta ár dreifingartímabilsins var gjaldárið 1992. Við andlát manns tekur dánarbú hans við skattalegum réttindum hans og skyldum, þar á meðal heimild til dreifingar tekjufærslu söluhagnaðar samkvæmt 27. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt. Er því fallist á kröfur kæranda að þessu leyti. Fallist er á það með ríkisskattstjóra að skipta beri þeim hluta söluhagnaðar sem tilheyrir tekjuárinu 1993 hlutfallslega miðað við andlátsdag. Koma þannig 1.041.975 kr. til skattlagningar hjá hinum látna eða sem nemur 326/365 hlutum, en eftirstöðvar, 124.653 kr., koma til skattlagningar hjá kæranda.
Varðandi vaxtatekjur þá hefur yfirlýsing um skiptingu vaxtatekna ekki verið dregin í efa af hálfu ríkisskattstjóra. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er fallist á kröfur kæranda.
Vegna þess sem fram kemur í lok kröfugerðar ríkisskattstjóra skal tekið fram að í þessum úrskurði verður ekki tekin afstaða til álagningar opinberra gjalda gjaldárið 1995, enda liggur ekki fyrir kæranlegur úrskurður af hendi skattstjóra í málinu varðandi það gjaldár. Varðandi athugasemdir kæranda um sérstakan tekjuskatt skal á það bent að hann fellur niður með úrskurði þessum.
Ú r s k u r ð a r o r ð :
Fallist er á kröfur kæranda.
