Úrskurður yfirskattanefndar
- Skattlagning hjóna
- Valdsvið yfirskattanefndar
- Málsmeðferð
Úrskurður nr. 165/2026
Gjaldár 2020-2023
Lög nr. 90/2003, 96. gr., 116. gr. Lög nr. 30/1992, 2. gr.
Í kjölfar endurákvörðunar ríkisskattstjóra á opinberum gjöldum A vegna meintra vantalinna tekna af skammtímaútleigu íbúðarhúsnæðis tók ríkisskattstjóri mál A til meðferðar að nýju og felldi niður fyrri breytingar á skattskilum A á þeim forsendum að leigutekjurnar tilheyrðu B, fyrrverandi maka A. A skaut ákvörðun ríkisskattstjóra til yfirskattanefndar og tefldi m.a. fram málsástæðum sem vörðuðu mál B, en úrskurði ríkisskattstjóra í máli B var hins vegar ekki skotið til yfirskattanefndar. Eins og atvikum var háttað taldi yfirskattanefnd ekki skilyrði til umfjöllunar um úrskurð ríkisskattstjóra í máli B, hvorki efni hans né formleg atriði. Var talið að við úrlausn málsins yrði að byggja á úrskurði ríkisskattstjóra í máli B, enda hefði ekki verið við honum haggað. Var kröfum kæranda hafnað og kærunni vísað frá yfirskattanefnd að því leyti sem hún varðaði ábyrgð á sköttum.
Ár 2026, fimmtudaginn 29. október, er tekið fyrir mál nr. 126/2026; kæra A, dags. 8. júní 2026, vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárin 2020, 2021, 2022 og 2023. Í málinu úrskurða Sverrir Örn Björnsson, Þórarinn Egill Þórarinsson og Bjarnveig Eiríksdóttir. Upp er kveðinn svofelldur
ú r s k u r ð u r :
I.
Með kæru, dags. 8. júní 2026, hefur kærandi skotið til yfirskattanefndar úrskurði ríkisskattstjóra, dags. 7. apríl 2026, vegna beiðni kæranda um endurupptöku á úrskurði ríkiskattstjóra, dags. 26. ágúst 2025, um endurákvörðun opinberra gjalda kæranda gjaldárin 2020, 2021, 2022 og 2023. Með hinum síðarnefnda úrskurði voru áður álögð opinber gjöld kæranda umrætt gjaldár endurákvörðuð vegna meintra vanframtalinna tekna kæranda af skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis á árunum 2019, 2020, 2021 og 2022 að viðbættu 25% álagi samkvæmt 2. mgr. 108. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Jafnframt endurákvarðaði ríkisskattstjóri virðisaukaskatt kæranda umrædd ár vegna útleigu húsnæðisins að viðbættu 10% álagi samkvæmt 1. og 2. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Úrskurður ríkisskattstjóra byggðist á upplýsingum um greiðslur til kæranda frá leigumiðluninni Airbnb og kom fram að kærandi hefði ekki sinnt bréfum ríkisskattstjóra til hans þar sem farið væri fram á upplýsingar um greiðslurnar og útleigu þeim tengdri. Með hinum kærða úrskurði féllst ríkisskattstjóri á endurupptöku málsins í tilefni af beiðni kæranda þar um, dags. 2. október 2025, og felldi niður greindar breytingar á skattskilum kæranda umrædd ár, bæði almennum skattskilum og virðisaukaskattsskilum, á þeim forsendum að kærandi hefði ekki verið móttakandi umræddra greiðslna frá Airbnb heldur fyrrverandi maki kæranda, B, þannig að færa bæri B greiðslurnar til tekna og skattleggja hjá honum á grundvelli ákvæðis 3. tölul. 2. mgr. 62. gr. laga nr. 90/2003 þar sem B hefði staðið fyrir rekstrinum en ekki kærandi.
Í kæru til yfirskattanefndar kemur fram að ríkisskattstjóri hafi fallist á að kærandi hafi aldrei þegið neinar greiðslur vegna útleigu íbúðarhúsnæðis. Kærandi hafi hins vegar reiknað með því að ríkisskattstjóri tæki til skoðunar í tengslum við endurupptöku málsins hvort tekjur af útleigu húsnæðisins hefðu verið færðar til tekna í bókum tveggja félaga sem séu eigendur hins útleigða íbúðarhúsnæðis, en ekki komi fram í úrskurði ríkisskattstjóra hvort svo sé. Af ákvörðun ríkisskattstjóra verði þó að draga þá ályktun að leigugreiðslurnar hafi ekki verið færðar til tekna hjá félögunum. Samkvæmt úrskurðinum hafi fyrrverandi maki kæranda með ólögmætum hætti slegið eign sinni á leigutekjur fyrirtækja sem hann hafi starfað fyrir, en kærandi hafi enga vitneskju haft um þá háttsemi fyrrum maka síns. Ólögmætur hagnaður af refsiverðri háttsemi teljist ekki til tekjuskattsskylds hagnaðar þar sem ákvæði laganna taki ekki til slíks hagnaðar. Ákvæði 116. gr. laga nr. 90/2003 um makaábyrgð á sköttum geti því ekki tekið til hagnaðar af refsiverðri starfsemi. Af hálfu kæranda sé því kærður sá hluti úrskurðar ríkisskattstjóra sem „tilgreinir að 1. mgr. 116. gr. laga [nr.] 90/2003 eigi við um málsatvik“, eins og segir í kærunni.
II.
Með bréfi, dags. 14. ágúst 2026, hefur ríkisskattstjóri lagt fram umsögn um kæruna. Þar kemur fram að þau atriði sem kærandi byggi á lúti að endurákvörðun opinberra gjalda í máli fyrrum maka kæranda. Sá úrskurður ríkisskattstjóra hafi ekki sætt kæru til yfirskattanefndar og standi því óhaggaður. Kærandi sé ekki aðili þess máls og beri því að vísa kærunni frá yfirskattanefnd. Að því marki sem ágreiningsmál snúist um greiðsluábyrgð samkvæmt 1. mgr. 116. gr. laga nr. 90/2003 sé um innheimtu opinberra gjalda að ræða sem heyri ekki undir yfirskattanefnd. Sé til þess mælst að úrskurður ríkisskattstjóra verði staðfestur með vísan til forsendna hans, enda þyki ekki hafa komið fram nein þau gögn eða málsástæður varðandi kæruefnið sem gefi tilefni til breytinga á ákvörðun ríkisskattstjóra.
Með bréfi til yfirskattanefndar hinn 25. ágúst 2026 hefur kærandi komið á framfæri athugasemdum sínum vegna umsagnar ríkisskattstjóra. Eru fyrri sjónarmið kæranda áréttuð og tekið fram að þar sem innheimtumaður ríkissjóðs geti gengið að kæranda um greiðslu á sköttum maka, sbr. 1. mgr. 116. gr. laga nr. 90/2003, séu hagsmunir kæranda ótvíræðir og því sé kærandi aðili málsins samkvæmt stjórnsýslulögum. Því hafi borið að veita kæranda andmælarétt við endurákvörðun opinberra gjalda fyrrum maka hans. Þá hafi tölvupóstum umboðsmanns kæranda til ríkisskattstjóra, þar sem óskað hafi verið eftir gögnum málsins, ekki verið svarað, en málinu hafi ranglega verið beint að kæranda í upphafi. Ágreiningi málsins verði skotið til yfirskattanefndar, sbr. 1. og 3. gr. laga nr. 30/1992. Þá sé óskýrt með öllu af hvaða ástæðum ríkisskattstjóri telji leigutekjur af íbúðum sem séu í eigu félaga til tekna hjá maka kæranda. Ríkisskattstjóra hafi borið að fela skattrannsóknarstjóra meðferð málsins vegna ætlaðra umboðssvika, sbr. 6. mgr. 96. gr. laga nr. 90/2003, í stað þess að virða ólögmæta auðgun fyrrverandi maka kæranda sem lögmætar tekjur hans.
III.
Eins og fram er komið féllst ríkisskattstjóri með hinum kærða úrskurði, dags. 7. apríl 2026, á endurupptöku máls kæranda, sem lauk með úrskurði ríkisskattstjóra um endurákvörðun, dags. 26. ágúst 2025, og felldi niður þær breytingar á skattskilum kæranda, bæði almennum skattskilum hans og virðisaukaskattsskilum, sem síðarnefndur úrskurður hafði í för með sér. Lutu breytingarnar að tekjufærslu húsaleigutekna vegna skammtímaútleigu íbúðarhúsnæðis og ákvörðun virðisaukaskattsskyldrar veltu vegna sömu starfsemi. Byggði ákvörðunin á því að tekjur af útleigu húsnæðisins tilheyrðu fyrrverandi maka kæranda, B, og því bæri að fella niður greindar breytingar á skattframtölum kæranda árin 2020, 2021, 2022 og 2023. Í kæru til yfirskattanefndar eru ekki gerðar athugasemdir vegna þessarar ákvörðunar ríkisskattstjóra en þess krafist að sá hluti úrskurðarins, þar sem vakin var athygli á ákvæði 1. mgr. 116. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, um samábyrgð hjóna á sköttum, „séu felld úr úrskurðinum“, eins og segir í bréfi kæranda til yfirskattanefndar frá 25. ágúst 2026, sbr. og kæru til nefndarinnar. Er því mótmælt í kærunni að umrætt ákvæði eigi við í tilviki kæranda auk þess sem gerðar eru athugasemdir við meðferð máls sem beint hafi verið að fyrrverandi maka kæranda vegna tekna af útleigu sem um ræðir.
Í hinum kærða úrskurði kemur m.a. fram að umræddar leigugreiðslur „[verði] … færðar til tekna“ hjá fyrrum maka kæranda með því að þær tilheyri honum og er tekið fram að B hafi ekki andmælt þeirri afstöðu ríkisskattstjóra þrátt fyrir að hafa átt þess kost. Verður því að ganga út frá því að ríkisskattstjóri hafi tekið opinber gjöld B til endurákvörðunar samhliða ákvörðun sinni í máli kæranda eða í kjölfar hennar, sbr. og umsögn embættisins til yfirskattanefndar þar sem fram kemur að úrskurði í máli B hafi ekki verið skotið til yfirskattanefndar.
Í kæru til yfirskattanefndar er teflt fram sjónarmiðum sem fyrst og fremst varða mál fyrrum maka kæranda vegna endurákvörðunar ríkisskattstjóra á opinberum gjöldum hans, þ.e. að meðferð þess máls hafi verið áfátt, m.a. þar sem ekki hafi verið grafist fyrir um það hvort leigutekjur hafi verið færðar til tekna í skattskilum einkahlutafélaga sem séu skráð eigendur hins útleigða húsnæðis og að kæranda hafi ekki verið gefinn kostur á andmælum í því máli. Eins og fyrr getur hefur úrskurður ríkisskattstjóra í skattamáli B ekki sætt kæru til yfirskattanefndar og er úrskurðurinn ekki meðal málsgagna í máli kæranda. Ekki verður þó séð að úrskurðurinn hafi leitt til breytinga á álögðum gjöldum kæranda vegna lagareglna um skattlagningu hjóna og sambýlisfólks, enda hefur ekkert komið fram þess efnis. Eins og atvikum er háttað að þessu leyti eru ekki skilyrði í máli kæranda til að fjalla um fyrrgreindan úrskurð í máli B, hvorki efni hans né formleg atriði, þ.e meinta ágalla á meðferð máls hans. Fyrrum maki kæranda hefur enga aðkomu að máli þessu, eins og það liggur fyrir, og umræddur úrskurður í máli hans sætir ekki kæru, eins og fram er komið. Að svo vöxnu máli og með vísan til þess, sem að framan greinir um málsaðild, verður við úrlausn málsins að byggja á úrskurði þessum í máli fyrrverandi maka kæranda, enda hefur ekki verið við úrskurðinum haggað og hann stendur því að formi og efni. Að því leyti sem kröfur kæranda lúta að því að sá úrskurður verði felldur úr gildi verður því að hafna þeim kröfum.
Vegna þess þáttar í kröfugerð kæranda sem lýtur að ábyrgð hans á vangoldnum sköttum fyrrum maka skal tekið fram að um ábyrgð hjóna og sambúðarfólks á skattgreiðslum er fjallað í 116. gr. laga nr. 90/2003, í XIII. kafla þeirra laga um innheimtu og ábyrgð. Hefur verið litið svo á að ágreiningsefni varðandi innheimtu álagðra opinberra gjalda, þ.m.t. ábyrgð á skattgreiðslum, eigi ekki undir kærumeðferð þá sem kveðið er á um í 100. gr. laga nr. 90/2003 og lögum nr. 30/1992, um yfirskattanefnd. Samkvæmt 111. gr. laga nr. 90/2003 skulu skattar sem álagðir eru samkvæmt lögunum renna í ríkissjóð og þar segir að innheimtumenn ríkissjóðs annist innheimtu þeirra. Um innheimtu á sköttum, gjöldum og sektum ásamt vöxtum, álagi og kostnaði, sem lögð eru á af stjórnvöldum og sem innheimtumönnum ríkissjóðs er falið að innheimta, gilda lög nr. 150/2019, um innheimtu opinberra skatta og gjalda. Í 5. gr. þeirra laga er m.a. fjallað um heimild til að fá ákvarðanir innheimtumanns ríkissjóðs endurskoðaðar með stjórnsýslukæru til fjármála- og efnahagsráðuneytisins á grundvelli VII. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Samkvæmt þessu er ekki á valdsviði yfirskattanefndar að taka til efnislegrar úrlausnar kröfu kæranda varðandi ábyrgð á álögðum opinberum gjöldum fyrrverandi maka og er þeim hluta kærunnar af þeim sökum vísað frá yfirskattanefnd.
Ú r s k u r ð a r o r ð :
Kærunni er vísað frá yfirskattanefnd að því leyti sem hún varðar ábyrgð á sköttum. Að öðru leyti er kröfum kæranda hafnað.
